Vitleysan mín

Ruglið

06.01.2007 20:29:04 / saetrun

Heiðrún

Heiðrún er Hanna Hlíf var að krulla á henni hárið
"mér líður eins og eldfjalli sem er að fara að gjósa"

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 13:12:19 / saetrun

hæjhæj :)

Jæja ;) það er búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið, þetta er fjórða vikan mín í prófum :( búhúhú... en þetta styttist allt, eitt próf eftir :):):) jey þá verður gaman :D en annars er ég bara búin að vera að læra og hitta Adda inn á milli. Á mánudaginn byrja ég að vinna, verð að vinna á Hjalla (gamla leikskólanum mínum) það ætti að verða gaman :) en úff hvað verður gaman um helgina, ætla að taka því rólega á föstudaginn og kíkja í bíó með Adda en á laugardaginn er hún Hanna  Hlíf að halda upp á afmælið sitt og auðvitað Eurovision en þar verður mikið djammað :) hehe og þar sem Hanna Hlíf er svo mikill Eurovision fan þá býst ég við að þetta verði  rosalega vel planað kvöld :)

en ég fann eitt voða sætt áðan ;)

love
Þú spurðir mig ; Ertu hrifinn af mér ?
ég sagði ; nei.
Þú spurðir mig ; Er ég sæt ?
ég sagði ; nei.
Þú spurðir mig ; Á ég ein hjarta þitt ?
ég sagði ; nei.
Þú spurðir mig ; grætur þú ef ég fer ?
ég sagði ; nei.

Þegar þú fórst greip ég í hönd þína og sagði ;
Ég er ekki hrifinn af þér – ég elska þig !
Þú ert ekki sæt – þú ert fallegust af öllum !
Þú átt ekki ein hjarta mitt – þú átt mig allan !
Ég myndi ekki gráta ef þú færir – ég myndi deyja!

væri geðveikt næs að heyra svona ;) híhíhí...


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 15:16:38 / saetrun

hmmm

hmm... ég var að komast að því að ég er einhvernveginn ekki á árshátíðarlistanum í vinnunni, sem er einstaklega skrítið þar sem ég sendi póst og skráði mig fyrir löngu síðan... já en fúlt... :S þetta er ekki fyndið hvað er mikið bull í þessari vinnu, það er búið að taka 5000 kall af laununum mínum síðustu tvo mánuði og mér er gefin sú skýring að það séu veikindadagarnir mínir, sem er einganveginn satt þar sem ég á að fá tvo veikindadaga greidda í mánuði og er það svo sannarlega ekki... ég er ekki alveg nógu sátt með þetta fólk....

en annars gengur bara rosa vel hjá mér :) er bara á fullu í skólanum og vinna og svona :) fór í bekkjarpartý hjá 4-H um helgina, þar voru fullt af þjóðverjum og einhverjir úr bekknum mínum :) voða mikil stemmning ;)

Kristrún endaði með einum gaur eða, segir að ekkert hafi gerst, en ég á eftir að tala nánar við hana ;) hehe...

en jámm ég segi þá bara bless í bili :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 18:23:17 / saetrun

:)

jæja, hef ekki mikið að segja, ekkert að gerast, bara vinna og skóli, nema er loksins búin með ökuskólann þannig að ég get farið að drífa mig í prófin :P hehe en jámm fann hérna sodið sniðugt hehe

http://www.darkstormguild.com/files/Ultimate_Showdown_of_Ultimate_Destiny.swf

tékkiði á þessu ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 10:30:17 / saetrun

Kíkiði á þetta

Setti nýjan tengil inn, mjög sérstakur húmor hér á ferð, endilega tékkiði á þessu, en ég vara ykkur við, þetta er ekki fyrir viðkvæmar sálir ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 22:01:43 / saetrun

Jájá stuð stuð

Jæja nú sit ég hér og er að reyna að ná í snjóinn, þyrfti nú bara að fara að binda tíkina niður... hún á ekkert að vera að ráfa svona um sambandslaus...

En annars var Nemó í gær, hmm byrjuðum í morgunpartýi hjá einum bekkjarbróðurnum, svo var sýningin klukkan tvö, rosalega flott sýning, bara sú flottasta síðan ég byrjaði í skólanum :) svo var matur í þjóðleikhúskjallaranum klukkan sjö og party hjá ásdísi eftir það :) en já mar mætti í partýið í smá stund svo skelltum ég og Hanna Hlíf okkur bara í partýið hjá 5-S sem hún Heiðrún hélt og þar var nú mikið fjör :P en svo fórum við á ballið þar sem við vorum nánast traðkaðar niður fyrir utan, ég týndi uppáhalds betlinu mínu :( frekar fúlt, og svo var ballið ekkert það skemmtilegt.... Páll Óskar wannabeeið reyndi að tosa mig með sér uppá svið... sem var ekki alveg að ganga og um leið og hann sneri frá mér, þá hljóp ég eins og ég gat í burtu :P

Mikið rosalega vorum við skvísurnar samt flottar, úff hver væri ekki til í okkur spyr ég nú bara :P hehehe... en jámm verð að setja myndir inn seinna ;) svo þið getið nú fengið að sjá dýrðina ;) híhí...

hmm spurning hvað planið er um helgina... langar að djamma :P en spurning hvort mar geri það...

Mín er að bíða eftir kjúklinganiðurstöðum frá Danmörku til þess að fá að vita hvort ég megi borða kjúkling aftur :( langar svo í kjúkling! þurfti að fá mér lambakjöt í gær... uss uss uss en já... fólk verður nú að kommenta hérna á þessari síðu minni... ekkert gaman að þessu annars ;) en hey kanski ég seti soldið sniðugt hingað inn til að fá ykkur til að kommenta almennilega ;) held það barasta ;)  hér kemur það :P og vinsamlegast svarið í kommentum ;)

1. Hver ert þú ?

2. Erum við vinir ?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig ?

4. Ertu hrifinn af mér ?

5. Langar þig að kyssa mig ?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst ?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig ?  

10. Hvað minnir þig á mig ?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera ?

12. Hversu vel þekkiru mig ?

13. Hvenær sástu mig síðast ?

14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það ?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig ?

Takk elskurnar ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 15:30:50 / saetrun

Gleðilegt ár :)

Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar :):):) og takk fyrir það gamla :D

ég vona að þetta ár eigi eftir að gera ykkur öllum gott :D

það byrjar allavega mjög vel hjá mér :D vonandi að það sé þannig hjá ykkur líka :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 13:36:10 / saetrun

ohhh

Ohh af hverju þurfa jólin að vera að koma núna... þegar lífið mitt er algjörlega í rúst... þau þurfa alltaf að koma þegar það er allt ömurlegt.... af hverju geta þau ekki reynt að koma þegar allt er frábært... sem gerist nú ekki það oft... en samt!! einu sinni, bara einu sinni að koma þegar mér líður vel..... ég nenni ekki að fá þessi jól... kanski ætti ég bara að gerast trúleysingi og halda ekki upp á jólin... þá myndu þau nú ekki koma hjá mér...

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 11:53:27 / saetrun

PRÓFIN BÚIN :D:D:D:D:D

Víííí... kláraði prófin í gær :D er komin í jólafrí :D

Já eftir prófið í gær fór ég heim og fór aðeins að sofa og dreymdi nottla steiktan draum eins og venjulega... held það sé eitthvað virkilega mikið að gerast í hausnum á mér :P svo fór ég í bæinn með mömmu og Ernu að kaupa jólagjafið og FÉKK MÉR GAT Í EYRAÐ UPPI :D þannig að núna er ég búin að gera það sem ég ætlaði að gera við eyrun á mér :D víííí..

Jámm svo fór ég heim að hafa mig til fyrir kvöldið... ætlaði að kíkja í partý hjá bekkjarbróður mínu og svona... og fékk líka þessa svakalegur köggla með mér :) Valla og Stefán... gaman að þeim :D en svo ætluðum við að kíkja á jólaballið á Gauknum en nei þá voru einhverjir kennarar í gæslu þannig að við fengum ekki að fara inn... þannig að við enduðum á rúntinum bara... samt stuð með svona stuðboltum ;) hehehe en Stefán beilaði á mér :( hætti við að fara í pilsið mitt... usss... karlmenn :P hehehehe

En woohoo núna get ég byrjað að fara í jólaskap :D:D:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 19:16:22 / saetrun

Eitthvað bull

Erfitt að vera sterk

 

Það er erfitt að vera sterk

Þegar mér finnst eins og heimurinn sé að hrynja og glerbrotum rigni yfir mig, skerandi mig alla…

Þegar mér finnst eins og það sé búið að setja hjartað á mér í  þvingu og herða eins mikið og hægt er… rólega að murka úr mér lífið…

Þegar mér líður eins og eldfjalli tilbúnu til að springa á hverri stundu…

Fljótlega mun hraun vella allt í kringum mig…Og folk mun vita sannleikann…

 

 Það er erfitt að vera sterk…


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 16:00:39 / saetrun

jæja

Jæja það lítur út fyrir það að ég verði ein enn ein jólin... svoleiðis eru þessi jól nú oftast hjá mér... ein heima með familíunni, svo um áramótin hef ég aldrei neitt að gera... ein ástæða fyrir því að ég elska jólin svona mikið.... :P


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 20:04:05 / saetrun

NEIIIIIII

AHHHHHHH held ég sé komin með ofnæmi fyrir kjúklingi!!!!! og ég borða ekki neitt annað kjöt!!!!! Þetta má ekki vera að gerast núna :(:(:(

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 18:22:17 / saetrun

hahaha

Haha þetta er ógeðslega fyndið!!!

kanínur að drepa sig!!!

http://hannes.domainplanet.at/fusi/BunnySuicide/Bunny%20suicides.html

Þið verðið að skoða þetta!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 17:53:43 / saetrun

Jæja

Próf próf endalaus próf....

það er svo leiðinlegt að vakna, fara í próf, koma heima og byrja að læra undir næsta próf og læra þangað til að maður fer að sofa. Það er bara niðurdrepandi :(

en annars er ég bara hérna í tölvunni að læra eitthvað... en ég fór að sjá litlu nýfæddu frænku mína í gær, hún er svo ótrúlega sæt, ohh hún er sætasta frænka í öllum heiminum :) ég og erna vorum að passa hana í gær á meðan mamma hennar skrapp aðeins :) hún er svo svakalega lítil, bara 2 kg :S algjör rúsína :)

Annars er ég að fara á jólahlaðborð í vinnunni á sunnudaginn, þekki samt eiginlega engann þannig að ég á eftir að vera eins og einhver skítur þarna, ekki gaman :(

en hvernig er það, er fólk að gefa margar jólagjafir í ár?


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 20:24:31 / saetrun

Alein...

Vá hvað mér leiðist… ég hef nákvæmlega ekkert að gera… sit bara hérna heima að hlusta á tónlist… vill ekki einhver koma að gera eitthvað L langar ekki að vera hérna ein og gera ekki neitt L það er ekkert gaman… rosalega langt síðan ég hef séð mörg ykkar, ég verð nú að segja að ég sakna þess… sakna þess að hitta ykkur… endilega hafiði samband ef þið viljið hittast og gera eitthvað… úff, ég er eitthvað rosalega ein núna… ein með þungarokkið mitt…


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Aðrir Bloggarar